7ÍHÖGGI ehf.
7ÍHÖGGI ehf.

 09.03.2011
 Þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands Sunnudaginn 13.mars 2011.
Sunnudaginn 13. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eiga búning að nota hann og jafnframt fyrir alla sem eru áhugasamir um íslenska þjóðbúninga að koma og sjá fjölbreytni þeirra. Mögulegt verður að fá aðstoð við uppsetningu höfuðbúnaðs á safninu. Sérstaklega er hvatt til þess að fólk mæti á þjóðbúningi síns heimalands.
Þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands Sunnudaginn 13. mars verður þjóðbúningadagur í Þjóðminjasafni Íslands. Gestir eru hvattir til að mæta á þjóðbúningi til að sýna sig og sjá aðra. Þetta er kjörið tækifæri fyrir þá sem eiga búning að nota hann og jafnframt fyrir alla sem eru áhugasamir um íslenska þjóðbúninga að koma og sjá fjölbreytni þeirra. Mögulegt verður að fá aðstoð við uppsetningu höfuðbúnaðs á safninu. Sérstaklega er hvatt til þess að fólk mæti á þjóðbúningi síns heimalands. Á Torgi við Safnbúðina verður sýningin Kvon. Á sýningunni má sjá kjóla hannaða af Maríu Th. Ólafsdóttur, en hún sækir meðal annars innblástur í íslenska þjóðbúninga. Sýningin er óður til fagurkerans, minni til íslenskra kvenna, ómur fortíðar og vitnisburður nútíðar. Viðburðurinn hefst kl. 14:00 Aðgangur er ókeypis fyrir alla sem mæta í safnið á þjóðbúningi.

7ÍHÖGGI ehf. Nethyl 2E. 110 Reykjavík. Sími - 5518987.
© 2008 Uppsetning og hönnun Hýsir.is